Hollt

Hollt

Taílenskt regnbogasalat með trylltri dressingu

50
mín
Erfiðleikastig
Innihald

Hráefni

  • Gulrætur
  • Gul paprika
  • Rauð paprika
  • Ferskt rauðkál
  • Hvítkál
  • Ferskt mangó
  • Agúrka
  • Baunaspírur
  • Kasjúhnetur
  • Ferskur kóríander
  • 2-3 grillaðar kjúklingabringur, rifnar
  • 2 msk rautt karrýmauk frá Blue dragon
  • 2 msk ólífuolía
  • Salt og pipar

Dressingin góða!

  • 3 msk hrísgrjónaedik frá Blue dragon
  • 4 msk Japönsk sojasósa frá Blue dragon
  • 2 hvítlauksgeirar
  • 2 msk hunang
  • 1 msk ferskt engifer
  • 2 msk fínt hnetusmjör, ég notaði frá Rapunzel
  • 2 tsk sesamolía
  • 3 msk ólífuolía

Leiðbeiningar

  1. Setjið kjúklingabringurnar í djúpan disk, setjið karrýmaukið, ólífuolíu og salt og pipar yfir og veltið bringunum upp úr því þar til þær eru sirka jafnt kryddaðar.
  2. Látið aðeins bíða á meðan þið skerið grænmetið. Ég skrifa ekki magn af hverri tegund fyrir sig en það er algjört smekksatriði. Ég sker allt í litla strimla eða juilenne skurð. Mér finnst það koma best út þannig en auðvitað er það frjálst. Blandið öllu saman.
  3. Grillið kjúklingabringurnar við háan hita á gasgrilli þar til kjarnhiti fer upp í 70°C.
  4. Kælið bringurnar aðeins og rífið þær niður eða skerið í bita. Berið fram með dressingunni.

Dressingin góða!

  1. Setjið öll innihaldsefnin í dressinguna í lítinn blandara eða nutri bullet og vinnið allt vel saman. Berið fram með salatinu.

Þetta salat er svo dásamlegt, stútfullt af næringu og það er sérlega þægilegt að getað sleppt einhverjum af innihaldsefnunum eða skipt þeim út. Áherslan er lögð á sem flesta liti og dressingin setur punktinn yfir i-ið. Hún í senn sölt og sæt, ásamt því að hafa þetta unaðslega umami bragð. Ég nota rauða karrý maukið frá Blue dragon á kjúklinginn og mér finnst það gefa sérlega gott bragð ásamt því að koma með smá hita í bragðið. Salatið er sérlega fallegt á borði og ég mæli eindregið með því að bera það fram í matarboðum eða saumaklúbbnum t.d.

3
3
3
3
3
3
No items found.

Svipaðar uppskriftir

Sjá allt