Poke Bowl

32
mín
Erfiðleikastig
Innihald

Hráefni

  • 200 gr Hrísgrjón
  • 250 gr Ferskur Lax t.d. frá Hafinu
  • 2 msk Hvítvínsedik
  • 2 msk Vorlaukur
  • 2 msk Lime safi
  • 1 msk Sojasósa
  • 200 gr Vatn
  • 1 Avocado
  • 1/4 Agúrka
  • 1/2 Mangó
  • 50 gr Edamame Baunir
  • Kóríander eftir smekk (val)

Leiðbeiningar

  1. Setjið grjón í pott og vatn yfir og náið upp suðu
  2. Leyfið að sjóða í 10 mín og takið svo til hliðar og kælið
  3. Setjið edik yfir grjónin og hrærið í þeim til að losa þau frá hvort öðru
  4. Skerið lax niður í mátulega stóra bita og setjið í skál
  5. Hellið yfir laxinn lime safa og sojasósu og leyfið að standa í 5 mínútur
  6. Skerið niður agúrku, avocado, mangó og vorlauk
  7. Ég kaupi frosnar edamame baunir og set þær á pönnu í sirka 5 mín til að afþýða
  8. Bætið öllu ofan á hrísgrjónin í skál og njótið
  9. Gott er að setja Chilimayo ofaná

Þessi bráðholla skál er skemmtileg, litrík, holl og einföld og tilvalin til þess að brjóta upp hefðbundna fiskinn sem maður á oft til með að gera aftur og aftur. Það er algjörlega hægt að leika sér með innihalds efnin og setja það sem hverjum og einum finnst best ofan í hana. Mér finnst gott að hafa sushi engifer og chilimayo með og hendi því alltaf ofan á hana. Þennan rétt er ekkert mál að bjóða upp á í matarboði, en það er auðveldlega hægt að vera búinn að skera niður allt og blanda því svo saman rétt áður en rétturinn er borinn fram. Þessi færsla er unnin í samstarfi við Hafið, en ég versla alltaf minn fisk þar því ég veit að þar fæ ég ferskan og nýjan fisk, sem skiptir öllu máli þegar hann er notaður í svona rétti þar sem hann er ekki eldaður. Fiskurinn í þessa uppskrift kostaði tæplega 750 kr og restin af hráefnunum er ódýr - svo það þarf ekki að vera dýrt að borða hollt og gott

- Íris Blöndahl

[video poster="https://grgs.is/wp-content/uploads/2019/06/hafid1-m4v-image.jpg" width="1920" height="1080" m4v="https://grgs.is/wp-content/uploads/2019/05/hafid1.m4v"][/video]

3
3
3
3
3
No items found.