Innihald
Hráefni
- 2 egg við stofuhita
- 1- 2 msk laktósafrír rjómi frá Örnu
- 2 tsk fljótandi kókosolía
- 1/2 tsk vanilludropar
- 2 tsk sykurlaus sæta eins og erythritol, líka hægt að nota nokkra stevíudropa, má einnig sleppa
- 4 tsk kókoshveiti
- 3/4 tsk lyftiduft, má einnig nota vínsteinslyftiduft
- Örfá saltkorn
Leiðbeiningar
- Setjið egg, rjóma, kókosolíu, vanilludropa og sætu ef vill í blandaraglas. Látið blandarann vinna þar til allt er samlagað og vel þeytt.
- Opnið glasið og setjið kókoshveiti, lyftiduft og salt út í og hrærið saman við með gaffli.
- Egg geta verið misstór, kókoshveiti er líka misjafnt svo ég aðlaga þykktina með því að bæta við kókoshveiti eða rjóma eftir þörfum
- Hitið teflon pönnu að miðlungshita og setjið deigið á pönnuna með skeið, mótið pönnuköku með skeiðinni.
- Fylgist vel með hitanum og betra er að hafa lægri hita en hærri. Snúið pönnukökunum við þegar toppurinn hefur nánast alveg þornað. Snúið varlega.
- Bakið í svona 1-2 mín í viðbót og njótið með því sem hugurinn girnist. Hérna setti ég smá sykurlausa sultu, bláber, sykurlaust síróp og kókosflögur en góð sletta af þeyttum rjóma er líka fullkomið.
Mér finnast amerískar pönnukökur alltaf svo ótrúlega góðar og fátt eins gott á helgarmorgni með rjúkandi heitum kaffibolla.
Þessa uppskrift hef ég þróað og betrumbætt í örugglega hátt í 5 ár og er svona mín "go to" uppskrift. Þær eru ótrúlega góðar og halda sér vel en það eru örfá atriði sem þarf að huga að við gerð þeirra.
Þessi skammtur er fyrir 1-2 en það er ekkert mál að margfalda uppskriftina, verði ykkur að góðu!
Færsla unnin af Völlu í samstarfi við Örnu, mjólkurvinnslu á Bolungarvík





.jpg)





























































































