Hráefni
- 1 dós kjúklingabaunir frá Rapunzel, vökvinn síaður frá (hægt að nota í marengs o.fl.)
- 1/3 bolli möndlusmjör frá Rapunzel
- 1/3 bolli Rapadura hrásykur frá Rapunzel
- 1/4 bolli hlynsíróp frá Rapunzel
- 5 msk malaðar möndlur eða möndlumjöl
- 1/2 tsk lyftiduft
- 1/2 tsk matarsódi
- 1/4 tsk vanillukorn frá Rapunzel
- 1/4 tsk himalayasalt
- 100g kókossúkkulaði frá Rapunzel
Leiðbeiningar
- Byrjið á því að hita ofninn í 175°C og setja bökunarpappír í lítið eldfast mót, ca. 20x20cm
- Sigtið kjúklingabaunirnar og skolið vel undir kaldri vatnsbunu
- Setjið hreinsaðar kjúklingabaunir, möndlusmjör, hlynsíróp, sykurinn, vanillu, möndlumjölið, matarsódann, lyftiduftið og salt í matvinnsluvél og vinnið þar til deigið er silkimjúkt
- Saxið súkkulaðið og takið fra nokkra stærstu bitana
- Takið skálina af matvinnsluvélinni og hnífinn úr, skafið deigið af hnífnum og blandið súkkulaðinu saman við með sleikju
- Setjið deigið í formið og stráið afgang af súkkulaðinu yfir
- Bakið í 25 - 30 mín, varist að baka kökuna of lengi, þessar brownies eru bestar þegar þær eru mjúkar í miðjunni
[contact-form][contact-field label="Nafn" type="name" required="true" /][contact-field label="Tölvupóstur" type="email" required="true" /][contact-field label="Vefur" type="url" /][contact-field label="Efni" type="textarea" /][/contact-form]
Kjúklingabaunir eru eitt af mínum uppáhalds hráefnum í eldhúsinu og alltaf langað að prófa að nota þær í eitthvað sætt. Við notum þær kannski meira í að gera hummus og borgara, jafnvel falafel en hérna datt ég niður á eitthvað rosalegt. Algjörlega stórkostlegt.
Kjúklingabauna brownies. Hljómar kannski ekki spennandi en það er bara ekki snefill af baunabragði. Heldur bara mjúkar, bragðgóðar kökur sem engum dettur í hug að innihaldi eitthvað annað en þetta hefðbundna eins og hveiti og hvítan sykur.
Þið bara verðið að prófa!
Unnið í samstarfi við Innnes, umboðsaðila Rapunzel og Oatly á Íslandi.
Uppskrift og myndir eftir Völlu





.jpg)











































































