Barnvænt

Barnvænt

Hollt

Hollt

Hráfæði

Hráfæði

Lífrænt

Lífrænt

Vegan

Vegan

Lífræn snickers stykki með dökku súkkulaði

45
mín
Erfiðleikastig
Innihald

Hráefni

  • 1/2 bolli hnetusmjör fínt*
  • 2 msk kókosolía*
  • 4 msk hlynsíróp*
  • 1/2 tsk vanillukorn*
  • 3/4 bolli saxaðar möndlur*
  • 1/2 bolli grófir hafrar*
  • 1/4 bolli mulin hörfræ*
  • 1/4 bolli sesamfræ*
  • 1/4 bolli fínt kókosmjöl*
  • 50g 70% súkkulaði*
  • 1 tsk kókosolía*
  • *Öll hráefnin eru frá Rapunzel - lífræn og vegan

Leiðbeiningar

  1. Setjið hnetusmjör, hlynsíróp, kókosolíu og vanillukorn saman í pott og bræðið saman. Setjið síðan restina af innihaldsefnunum út í pottinn og blandið saman við. Ef blandan er of þunn getið þið bætt aðeins við af kókosmjöli t.d.
  2. Setjið bökunarpappír í ílangt kökuform og þjappið blöndunni í formið. Kælið í að minnsta kosti 30 mín.
  3. Bræðið súkkulaði og 1 tsk af kókosolíu saman. Takið formið út og dreifið súkkulaði yfir. Kælið aftur í nokkrar mín og skerið í lengjur.

Þessi stykki eru pökkuð af næringu og orku. Tilvalin til þess að grípa með sér í fjallgönguna eða jafnvel golfhringinn. Þau eru einföld í gerð og þarf ekki að baka. Öll hráefnin eru lífræn og stykkin eru einnig vegan. Það er jafnvel hægt að skera þau í smærri bita og bjóða sem konfekt. Þau geymast best í kæli.

3
3
3
3
No items found.

Svipaðar uppskriftir

Sjá allt