Barnvænt

Barnvænt

Gratíneruð ýsa með bragðmikilli fetaostssósu

45
mín
Erfiðleikastig
Innihald

Hráefni

  • 800g - 1 kg ýsuflök, roðflett og beinlaus
  • 1 bolli þurr hýðishrísgrjón soðin, líka gott að nota afgangs hrísgrjón
  • 1 rauð paprika
  • 10 cm blaðlaukur
  • 150g sveppir
  • 250g kotasæla
  • 1 dl rjómi frá Örnu
  • 3 msk majónes
  • 1 krukka salatfeti frá Örnu
  • 1/2 fiskiteningur - 1/2 grænmetisteningur
  • sítrónupipar
  • 1 tsk dill
  • 1 poki rifinn mozarella með hvítlauk frá Örnu

Leiðbeiningar

  1. Byrjið á því að sjóða einn bolla af hýðishrísgrjónum eftir leiðbeiningum. Setjið í eldfast mót.
  2. Skerið ýsuna í bita og leggið ofan á hrísgrjónin og kryddið með sítrónupipar eftir smekk.
  3. Saxið grænmetið og stráið yfir fiskinn.
  4. Sigtið fetaostinn og stappið. Blandið saman í skál, kotasælu, fetaosti, rjóma og majónesi. Myljið fiski og grænmetistening út í og kryddið með dilli.
  5. Setjið sósuna yfir grænmetið og toppið með rifnum mozzarella.
  6. Bakið við 190°C í 30 mín eða þar til osturinn er gylltur og fiskurinn tilbúinn. Berið fram með fersku salati og soðnum kartöflum.

Gratíneraðir fiskréttir hafa alltaf verið í miklu uppáhaldi hjá mér. Góð sósa er auðvitað lykilatriði og bráðinn osturinn til þess að toppa allt. Þessi réttur er reglulega góður og alls ekki flókinn í gerð. Fullkominn fyrir alla fjölskylduna og uppskriftin er stór svo það er jafnvel hægt að frysta afgangana til að eiga síðar eða taka með í nesti daginn eftir.

Uppskrift og myndir unnar af Völlu í samstarfi við Örnu, mjólkurvinnslu á Bolungarvík

3
3
3
3
3
No items found.

Svipaðar uppskriftir

Sjá allt