Innihald
Hráefni
- 235 ml mjólk, fingurvolg
- 2 egg, við stofuhita
- 75 g smjör, brætt
- 620 g hveiti
- 1 tsk salt
- 100 g sykur
- 10 g ger
Fylling í snúðana
- 220 g púðursykur
- 15 g kanill
- 75 g smjör
Rjómaostakrem
- 85 g Philadelphia rjómaostur
- 55 g mjúkt smjör
- 200 g flórsykur
- 1 tsk vanilludropar
- ½ tsk salt
Leiðbeiningar
- Setjið hráefnin fyrir snúðana í hrærivélaskál og hnoðið vel saman.
- Látið hefast í 45 mínútur eða þar til deigið hefur tvöfaldast í stærð.
- Setjið hveiti á borðið og hnoðið. Fletjið í ferning og látið standa í nokkrar mínútur.
- Bræðið smjörið fyrir fyllinguna, látið í skál með púðursykrinum og kanil. Hrærið vel saman og dreifið yfir degið.
- Rúllið deiginu þétt upp og skerið í 12-18 stykki.
- Setjið á bökunarplötu með smjörpappír og látið hefast í 30 mínútur.
- Bakið í 200°c heitum ofni í 30 mínútur.
- Takið úr ofni og kælið lítillega.
- Bræðið smjörið fyrir kremið og hrærið rjómaostinum saman við. Setjið flórsykur, vanilludropa og salt saman við.
- Látið kremið á snúðana og berið fram.
No items found.






































































