Hráefni
- 200g River rice hrísgrjón, finnst þau koma best út
- 400ml vatn
- 1 l. Nýmjólk frá Örnu
- 1 vanillustöng klofin eftir endilöngu
- 1 msk vanilludropar
- 100g sykur
- 1/2 tsk salt
- 150g möndluflögur
- 500ml rjómi frá Örnu
Hindberjasósa
- 200g hindber frosin
- 2 dl vatn
- 100g sykur
- 1 msk kartöflumjöl blandað saman við 1 msk vatn
Súkkulaði karamellusósa
- 200g demerara sykur
- 90g smjör
- 120ml rjómi frá Örnu
- 50-100g suðusúkkulaði, magn eftir smekk
- 1/2 tsk sjávarsalt
- Bræðið sykurinn við miðlungs hita. Hrærið stöðugt í svo sykurinn brenni ekki, þetta getur tekið nokkra stund. Þegar sykurinn er bráðinn bætið þá smjöri út í og hrærið kröftuglega með písk þar til þetta er samlagað. Bætið rjómanum þá út í og hrærið áfram. Slökkvið undir pottinum og bætið þá súkkulaði og salti saman við. Setjið strax í krukku.
Saltkaramellusósa
- 200g sykur
- 90g smjör
- 120ml rjómi frá Örnu
- 1 tsk sjávarsalt
Leiðbeiningar
- Sjóðið hrísgrjónin í vatninu í 2 mín og setjið þau svo í sigti og skolið undir kaldri vatnsbunu. Setjið grjónin aftur í pottinn ásamt sykri, salti, mjólk, vanillustöng og vanilludropum. Sjóðið rólega þar til úr verður þykkur grautur eða í 50 - 60 mín.
- Kælið grautinn helst yfir nótt.
- Þeytið rjómann og blandið saman við grautinn. Bætið möndluflögum saman við og hrærið varlega.
Hindberjasósa
- Setjið allt nema kartöflumjöl í pott og sjóðið saman í ca. 15 mín. Þykkið með kartöflumjölinu.
Saltkaramellusósa
- Setjið sykurinn í háan þykkbotna pott og bræðið varlega, hrærið stöðugt í. Þegar sykurinn er bráðinn hrærið þið smjörið saman við með písk. Þegar blandan er samlöguð bætið þið rjómanum út í og hrærið kröftuglega. Bætið sjávarsalti að síðustu saman við og setjið í krukku.
Þessi klassíski jólaeftirréttur á ættir sínar að rekja til Danmerkur og samanstendur af köldum sætum hrísgrjónagraut sem blandaður er saman við þeyttan rjóma, vanillu og möndlur. Margir eiga "sína" útgáfu og þessi er mín uppáhalds útfærsla. Ég nota hér Örnu rjómann og nýmjólkina en Örnu vörurnar fara töluvert betur í maga fjölskyldunnar auk þess sem mér líkar bragðið einfaldlega betur.
Ég stressa mig ekkert á sósunum sem bornar eru fram með. Ég skiptist alveg á að bera þennan rétt með kirsuberjasósunni klassísku, eða heimagerðri hindberjasósu, karamellusósu eða súkkulaðikaramellusósu. Allir eiga sitt uppáhald!
Uppskrift og myndir unnar af Völlu í samstarfi við Örnu mjólkurvinnslu á Bolungarvík







































































