Barnvænt

Barnvænt

Hollt

Hollt

Lífrænt

Lífrænt

Lífrænir hafrabitar með eplum, kanil og bláberja kompott

30
mín
Erfiðleikastig
Innihald

Hráefni

  • 1 bolli gróft haframjöl*
  • 1 stórt grænt epli*
  • 3 msk hlynsíróp frá Rapunzel*
  • ¼ tsk vanillukorn*
  • 1 tsk kanill*
  • ½ tsk matarsódi
  • ½ tsk lyftiduft*
  • 3 msk hrein jógúrt*
  • 2 egg*
  • 1 msk bragðlaus kókosolía*
  • ¼ tsk sjávarsalt
  • -----------------------------------
  • *lífræn hráefni

Bláberjakompott

  • 1 bolli frosin bláber*
  • 1 msk vatn
  • 2 msk hlynsíróp*
  • 2 msk hlynsíróp*
  • 1 tsk sítrónusafi af ferskri sítrónu*

Leiðbeiningar

  1. Hitið ofninn í 180°C blástur.
  2. Afhýðið eplið og skerið í grófa bita. Takið ¼ bolla af höfrunum og setjið til hliðar. Setjið eplið ásamt restinni af innihaldsefnunum í blandara og vinnið þar til þetta er orðið að jöfnu deigi. Bætið þá restinni af höfrunum út í deigið og hrærið varlega saman við.
  3. Setjið bökunarpappír í lítið form, ég notaði form sem er 20x20cm. Hellið deiginu í formið og stráið örlitlu af haframjöli yfir. Bakið í 25-30 mín.
  4. Takið formið út og kælið í nokkrar mínútur. Takið þá kökuna úr forminu með því að taka upp bréfið og setjið á kæligrind. Skerið í 9 bita þegar kakan er orðin köld.

Bláberjakompott

  1. Setjið helminginn af bláberjunum í pott ásamt hlynsírópi, vatni og sítrónusafa. Kveikið undir pottinum og látið berin malla í ca. 5 mín og kremjið þau með sleif á meðan. Þegar þetta er orðið að grófu mauki bætið þið restinni af bláberjunum saman við og hitið upp. Berið fram með hafrabitunum.

Okkur vantar oft hugmyndir af einhverju næringarríku og fljótlegu. Þessir bitar eru alveg ótrúlega einfaldir og það tekur enga stund að útbúa þá. Þeir eru sérlega góðir í nestiboxið eða á morgunverðarborðið. Þeir geymast vel í loftþéttu boxi í kæli, eru lífrænir, hveitilausir og fara einstaklega vel í maga. Þeir eru ekki dísætir en það má auka við eða draga úr sætumagni ef vill. Lífræna hlynsírópið frá Rapunzel er dásamlegt í bakstur og auðvitað alveg ljómandi gott með pönnukökum eða vöfflum. Það er einnig stórgott að setja nokkra dropa í kaffið en þessir bitar eru einmitt alveg sérlega góðir með rjúkandi heitum kaffibolla.

3
3
3
3
3
3
3
3
3
3
No items found.

Svipaðar uppskriftir

Sjá allt