Hráefni (4 borgarar)
- 600 g nautahakk
- 8 msk smjör eða kókosolía (til steikingar)
- 4 msk ólífuolía
- Gott sjávarsalt
- 1 rauðlaukur
- Shiitake sveppir (eftir smekk)
- 1-2 lárperur
- 1 sæt kartafla
Meðlæti (valfrjálst)
- ½ rauð paprika
- Ferskur engifer (á stærð við þumal)
- 1 rautt chili
- Sýrt rófusalat frá Móðir Jörð
Næringarrík og einföld máltíð þar sem hágæða hráefni fá að njóta sín. Safaríkur hamborgari borinn fram með ofnbakaðri sætri kartöflu, steiktum sveppum og fersku meðlæti.Næringarrík máltíð úr hreinum hráefnum sem veitir góða seddu og stöðuga orku. Próteinríkt nautahakk, góðar fitutegundir og trefjaríkt grænmeti styðja við blóðsykurjafnvægi, meltingu og almenna vellíðan. Sýrt grænmeti bætir við náttúrulegum gerlum sem eru einstaklega góðir fyrir þarmaheilsu.
Aðferð
Skerið í sæmilega þykkar sneiðar. Kryddið með sjávarsalti og hellið ólífuolíu yfir. Bakið við 200°C í 15-25 mínútur eða þar kartaflan er orðin mjúk í gegn.
Hamborgarar:
Mótið 4 hamborgara úr nautahakkinu og kryddið með sjávarsalti.
Steikið á pönnu úr smjöri eða kókosolíu í um 5 mínútur á hvorri hlið (eða eftir smekk).
Rauðlaukur & shiitake:
Skerið niður og steikið á pönnu úr smjöri eða kókosolíu.
Meðlæti (valfrjálst):
Saxið engifer og chilli smátt og skerið papriku í þunnar sneiðar. Blandið saman við sýrt rófusalat eða annað sýrt grænmeti frá Móður jörð.

