Elísa Kristinsdóttir hefur á undanförnum árum vakið mikla athygli fyrir stöðugar og markvissar framfarir í langhlaupum.
Skilvirk þjálfun og endurheimt
„Ég er mjög ákveðin gagnvart íþróttinni minni og set mér alltaf raunhæf markmið sem ég trúi á að ég geti náð,“ segir Elísa. Hún leggur áherslu á skilvirka þjálfun og gott teymi í kringum sig. „Að hafa góða þjálfara og mikinn stuðning gerir mér kleift að hámarka allt það sem ég legg í æfingarnar.“
Þegar Elísa horfir á heildarmyndina í þjálfun sinni er ljóst að árangurinn mótast ekki eingöngu af hlaupunum sjálfum. Endurheimt er lykilatriði. „Góður svefn, næg og rétt næring, ásamt reglulegri sjúkraþjálfun, nuddi og mobility-æfingum, skipta gríðarlega miklu máli. Þetta er það sem gerir manni kleift að halda stöðugleika til lengri tíma.“
Samspil næringar, vökva og frammistöðu
Umræðan um næringu og vökvun hefur aukist síðustu ár og að mati Elísu er það alls ekki bara tískubylgja. „Í hlaupunum er sérstaklega mikilvægt að lenda ekki undir orkuþörf. Ef næringin er ekki nægileg kemur það beint niður á frammistöðu og getur jafnvel leitt til meiðsla, eins og álagsbrota.“ Hún bætir við að næg vökvun skipti ekki síður máli. „Ef vökvamagn er ekki nægilegt aukast líkur á höfuðverk, þreytu, svima og minni einbeitingu. Þetta finnur maður strax.“
Á æfingatímabilum er dagurinn hjá Elísu vel skipulagður. Hún nærir sig reglulega fyrir, á æfingum og eftir þær og miðar við um 3.000 hitaeiningar á dag þegar álagið er mest. „Ég borða einfaldan, næringarríkan mat sem styður við æfingarnar. Það sama á við um vökvun. Ég drekk yfirleitt 2-3 lítra á dag og passa alltaf að fá næg sölt og steinefni, ekki bara vatn.“
Skýr markmið og jákvætt hugarfar
Hugurinn leikur þó ekki síður stórt hlutverk. „Hausinn þarf að vera rétt skrúfaður á. Þegar á reynir nota ég möntrur og leiði hugann annað. Ég fer alltaf inn í keppni með þakklæti í huga, fyrir það að fá að vera hér og gera það sem mér finnst skemmtilegast.“
Drifkrafturinn kemur að hennar sögn frá markmiðunum sjálfum. „Hver æfing hefur tilgang og eftir hana ertu aðeins nær markmiðinu. Maður sér aldrei eftir æfingu.“
Ráð hennar til annarra eru einföld: Finna hreyfingu sem veitir gleði, æfa í félagsskap og byggja upp markvissar venjur
„Skipulag og einföld skref í rétta átt geta haft meiri áhrif
en fólk gerir sér grein fyrir.“
Sjáumst á Heilsudögum í Nettó dagana 15.- 25. janúar, yfir 1200 heilsuvörur á allt að 25% afslætti.




