Miklar breytingar hafa verið gerðar á verslun Nettó á Höfn undanfarnar vikur og nýtt vörumerki Nettó hefur nú litið dagsins ljós. Verslunin hefur verið tekin í gegn frá grunni, uppröðun breytt, opnunartími lengdur og úrval aukið með það að markmiði að gera verslunarferð viðskiptavina sem þægilegasta.

Hluti af uppfærslu verslana um allt land

Breytingarnar eru hluti af víðtækara verkefni Nettó við að uppfæra verslanir fyrirtækisins um allt land. Að sögn Katrínar Aagestad Gunnarsdóttur, markaðsstjóra Nettó, hefur verið ákveðin viðhaldsskuld í verslunum og því sé nú unnið markvisst að því að taka þær í gegn.

„Það er mikill kraftur í Nettó þessa dagana og okkur finnst mikilvægt að íbúar um allt land fái sömu góðu upplifunina þegar þeir koma til okkar. Á Höfn höfum við ráðist í umfangsmiklar breytingar sem eiga fyrst og fremst að gera það þægilegra og betra að versla. Við vitum að það er alltaf nóg að gera í Nettó á Höfn og það er frábært að geta nú boðið viðskiptavinum upp á uppfærða verslun, aukið úrval og lengri opnunartíma,“ segir Katrín Aagestad Gunnarsdóttir, markaðsstjóri Nettó.

Aukið úrval og ferskur appelsínusafi

Þá hefur úrval Iceland frystivara verið aukið og vörurnar merktar betur. Einnig hefur verið komið fyrir Djúsvel þar sem viðskiptavinir geta nú gripið með sér ferskan appelsínusafa.

„Við erum mjög ánægð með breytingarnar. Það er alltaf nóg að gera hjá okkur og við höfum fundið vel fyrir því hvað viðskiptavinir kunna að meta þegar búðin er snyrtileg, vel uppsett og auðvelt að finna það sem leitað er að. Það er því virkilega gaman að sjá þessar breytingar og sjá nýja útlitið verða að veruleika,“ segir Harpa Dögg Kristjánsdóttir, verslunarstjóri Nettó á Höfn.

Áhersla á góða verslunarupplifun um allt land

Með breytingunum vill Nettó jafnframt leggja áherslu á þjónustu við landsbyggðina og tryggja að íbúar utan höfuðborgarsvæðisins hafi aðgang að góðu úrvali og þægilegri verslun. Samhliða breytingum á Nettó á Höfn opnar Heimkaup einnig starfsemi sína á sérstöku svæði fyrir utan verslunina.