Guðni Gunnarsson, stofnandi og upphafsmaður Rope Yoga á Íslandi og GlóMotion hugmyndafræðinnar, segir frá því hvernig hann byrjar daginn

Dagur sem byrjar í ró, rými og vitund

Heilbrigður lífsstíll snýst ekki um fullkomnun heldur jafnvægi, einfaldar venjur og meðvitaðar ákvarðanir. Morguninn hjá Guðna byrjar kl. 04.45 og hann nýtir fyrstu stundirnar til að skapa rými, kyrrð og skýrleika sem fylgja honum út daginn. „Morgunninn er helgasti tími dagsins og grunnurinn sem allt annað hvílir á,“ segir Guðni. Fyrstu 30 mínútur dagsins eru helgaðar hugleiðslu. Síðan fylgja tíu mínútna öndunaræfingar sem virkja taugakerfið, auka orku og koma líkamanum í jafnvægi.

Rólegur morgunn og nærandi venjur

Í eldhúsinu heldur morgunrútínan áfram með einföldum og nærandi venjum. Guðlaug, kona Guðna, fær kaffi sem er þeytt saman við kollagen, en hann MCT-kaffi með ósöltu smjöri og MCT-olíu. Hann fastar til hádegis og segir það hjálpa honum að halda sér léttum, stilltum og einbeittum. Um kl. 06.00, eftir að hafa lesið fréttir, svarað tölvupóstum og sent afmæliskveðjur í rólegheitum, sest Guðni á hækjur sér til að raka höfuðið með tveimur rakvélum. Á meðan gerir hann 30 stuttar hnébeygjur. Síðan hangir hann á slá í tvær mínútur til að opna brjóst, styrkja bak, axlir og grip og ná fram stöðugleika í taugakerfinu.

Hugleiðsla í sturtu og morgunganga

Fyrir Guðna snýst sturtan ekki bara um hreinlæti, heldur er hún hans helga stund þar sem hann stillir sig mjúklega og af fullri vitund inn í núið. Klukkan 06.40 fer fjölskyldan í 20 mínútna morgungöngu með hundinn Coco. Gangan tengir þau saman, færir þeim hreyfingu inn í daginn og minnir á mikilvægi náttúrunnar fyrir daglegt jafnvægi. Guðni er mættur til vinnu fyrir kl. 08.00. Þar hjálpar hann fólki að tengjast lífsorku sinnu og kennir því að verða valdhafar í eigin tilvist.

Næring veru – ekki fjarveru

Guðni leggur áherslu á að hjálpa fólki að skilja muninn á því að næra veru og næra fjarveru og að það hvernig við borðum sé jafn mikilvægt og hvað við borðum. „Að borða í vitund tryggir að líkaminn fái þau skilaboð sem hann þarf, að meltingin virkist og að næringin nýtist. Að borða í fjarveru – í streitu, á hlaupum eða í áhyggjum – getur tekið lífið úr jafnvel besta mat og dregið úr næringargildi upplifunarinnar.“

Sjáumst á Heilsudögum í Nettó dagana 15.- 25. janúar, yfir 1200 heilsuvörur á allt að 25% afslætti.