Við getum ekki stjórnað öllu í lífinu en við stjórnum lífsstílnum okkar. Hann er alltaf okkar val, segir Lukka Pálsdóttir, heilsufrömuður, stofnandi Greenfit og þáttastjórnandi Heilsuhlaðvarpsins. Sterkasta heilsutengda ákvörðunin er ekki tekin í ræktinni, í heilsueftirliti eða á læknastofu, heldur við innkaupakerruna.

Öflugustu lyfin fást í matvörubúðinni – og þau eru oft ódýrari, aðgengilegri og áhrifaríkari en öll þau vítamín, duft og töflur sem við gætum keypt síðar til að laga vandann sem átti aldrei að myndast.

Blómstra eða basla

Matvörubúðin er, í raun, heilsumiðstöðin okkar. Þar veljum við hráefnin sem annaðhvort byggja okkur upp eða brjóta okkur niður. Þar ákveðum við hvort við ætlum að næra frumurnar eða kæfa þær. Þar ákveðum við hvort orkustigið okkar verði stöðugt eða skammvinnt. Og þar ákveðum við hvort líkaminn fái tækifæri til að blómstra eða basla.

Lífsstíll er samansafn daglegra venja. Ef við setjum hráefni sem líkaminn þekkir í körfuna – kjöt, fisk, egg, grænmeti, ber og góða fitu – þá nærum við okkur vel, verðum orkumikil og í jafnvægi. Ef við fyllum körfuna af gjörunnum mat, sykri og skyndiorku, þá fær heilsufarið að gjalda þess.

Meðvitaðar ákvarðanir

Það er ekki flókið að byrja. Það krefst aðeins meðvitundar. Að ganga inn í búðina með spurningu í farteskinu: „Hvaða ákvörðun þjónar framtíðarheilsunni minni best?“ Þegar við spyrjum þannig breytist allt. Þá verður innkaupaferðin að atburði þar sem við mótum orkuna, geðheilsuna, svefninn og lífsgæðin sem við munum njóta næstu daga. Við búum á tíma þar sem lífsstílssjúkdómar eru stærsta áskorun nútímans – en góðu fréttirnar eru þær að lífsstíll er lærður, mótanlegur og val okkar á hverjum degi. Þú þarft ekki að breyta öllu í einu. Þú þarft bara að byrja á grunninum: Að velja hráefni sem vinna með þér, ekki á móti þér.

Matur er ekki bara næring

Matur er nefnilega ekki bara næring. Hann er skilaboð til frumnanna þinna um að byggja upp eða brjóta niður, kveikja á bólgu eða slökkva hana, auka orku eða draga orkustigið niður. Í matvörubúðinni velur þú hráefni sem verður að byggingarefni fyrir nýjar frumur í vöðvum, húð eða öðrum vefjum og líffærum, því frumur líkamans eru í stöðugri endurnýjun.

Þegar við tökum ábyrgð á innkaupunum tökum við ábyrgð
á lífsstílnum. Og þegar við tökum ábyrgð á lífsstílnum
breytist heilsan til hins betra – oft hraðar en við þorum
að vona. Þú ert við stjórnvölinn.

Sjáumst á Heilsudögum í Nettó dagana 15.- 25. janúar, yfir 1200 heilsuvörur á allt að 25% afslætti.