Hlaup eru gríðarlega vinsæl enda er fátt einfaldara en að reima á sig hlaupaskóna og leggja af stað. Næring skiptir máli hvort sem markmiðið er að njóta hreyfingarinnar, bæta tímann sinn eða undirbúa sig fyrir keppni.
Þegar líkaminn fær næga orku og vökva líður okkur betur á meðan við hlaupum og við eigum auðveldara með að jafna okkur eftir á.
Kolvetni gefa orku
Þegar við hlaupum notar líkaminn fyrst og fremst kolvetni sem orkugjafa. Í lengri hlaupum fara þessar birgðir smám saman að tæmast og því er mikilvægt að fylla á áður en orkuleysið gerir vart við sig. Góð þumalputtaregla er að taka eitt orkugel í hlaupi sem tekur um 60 mínútur. Ef hlaupið er lengra er ráðlagt að bæta reglulega á orkuna, yfirleitt á 20–30 mínútna fresti. Flestir hlauparar stefna að því að innbyrða 30–60 g af kolvetnum á klukkustund en í mjög löngum og krefjandi hlaupum geta vel þjálfaðir hlauparar nýtt sér allt að 70–90 g á klukkustund. Energy Gel PRO orkugelin frá BioTechUSA eru þægileg og góð til þess að fylla á orkuna. Gelið inniheldur fullkomna blöndu kolvetna ásamt söltum, steinefnum, magnesíum og B6-vítamíni. Áferð gelsins er létt og mjúk svo auðvelt er að koma því niður. Gelið hentar einnig vel í fjallgöngur, hjólaferðir, golf og aðrar þolíþróttir þar sem þörf er á fljótlegri orku.
Ekki gleyma að vökva þig
Þegar við svitnum missum við ekki bara vökva heldur einnig sölt og steinefni sem skipta máli fyrir eðlilega vöðvastarfsemi og frammistöðu. Í stuttum hlaupum dugar vatn oft vel, en eftir því sem hlaupin verða lengri og meira krefjandi verður sífellt mikilvægara að taka inn kolvetni, sölt og steinefni. Isotonic kolvetnaduftið frá BioTechUSA er vinsæll kostur meðal hlaupara og annarra sem stunda þolíþróttir. Það inniheldur þrjár tegundir kolvetna, sex mikilvæg sölt og steinefni ásamt C- og B6-vítamíni. Drykkurinn hentar vel í lengri æfingum og keppnum þar sem markmiðið er að viðhalda bæði orku og góðu vökvajafnvægi. Hann er einnig frábær kostur í fjallgöngur, hjólaferðir og aðra langvarandi hreyfingu.
Kreatín fyrir hlaupara
Margir tengja kreatín við lyftingasalinn, en það nýtist einnig hlaupurum. Kreatín styður við kraft, styrk og endurheimt og er góður kostur fyrir þá sem vilja jafna sig hraðar eftir krefjandi æfingar eða stunda styrktarþjálfun samhliða hlaupunum. Bestum árangri er náð með því að taka 3–5 g af kreatíni daglega. Auðvelt er að bæta því út í próteinsjeik eftir æfingu til að styðja við endurheimt.
Prótein fyrir endurheimt
Eftir hlaup eða aðra mikla áreynslu er mikilvægt að gefa líkamanum prótein til að styðja við uppbyggingu og viðhald vöðva.
100% Pure Whey próteinduftið frá BioTechUSA er fljótleg og þægileg leið til að hefja endurheimt eftir æfingu eða keppni. Þegar því er blandað með kreatíni og kolvetnum fær líkaminn næringuna sem hann þarf til að jafna sig og undirbúa sig fyrir næstu æfingu.
Orka á meðan á æfingu stendur hjálpar þér að viðhalda afköstum og frammistöðu. Prótein eftir æfingu styður við endurheimt og uppbyggingu vöðva. Saman skapa þau betri grunn fyrir árangur og næstu æfingu.
Hér fyrir neðan finnur þú uppskrift að einföldum og næringarríkum próteinsjeik sem hentar vel eftir æfingar eða keppni.
Hlauparinn – próteinsjeik eftir æfingu
300 ml möndlumjólk
30 g 100% Pure Whey
5 g kreatín
50 g banani
50 g mangó
20 g haframjöl
10 g hnetusmjör
5 ísmolar
Setjið allt hráefnið í blandara og blandið þar til drykkurinn verður silkimjúkur.
5 góð ráð fyrir hlaupara
- Borðaðu kolvetnaríka máltíð 2–3 klukkustundum fyrir lengri hlaup.
- Taktu orkugel ef hlaupið er lengra en um 60 mínútur.
- Drekktu reglulega og fylltu á sölt og steinefni í löngum hlaupum.
- Fáðu prótein og kolvetni innan klukkustundar eftir æfingu.
- Taktu kreatín daglega ef markmiðið er betri styrkur og endurheimt





