Gunnar gerir tilraunir með mismunandi kartöfluyrki og býður neytendum upp á litrík jarðepli undir merkjum Biobóndans.
Lífrænar kartöflur Biobóndans - ræktaðar af auðmýkt og forvitni
Gunnar Bjarnason keypti Litlu-Hildisey í Austur-Landeyjum árið 2018 til að rækta matvæli og árið 2022 fékk hann lífræna vottun. Hann gerir tilraunir með mismunandi kartöfluyrki og býður neytendum upp á litrík jarðepli undir merkjum Biobóndans.
Allt öðruvísi kartöflur, af hverju?
Fyrir nokkrum árum blossaði kartöflumygla, skæður plöntusjúkdómur, upp á Íslandi og eyðilagði alla uppskeru Gunnars. „Ég nota auðvitað aldrei eiturefni í minni ræktun svo ég varð að finna nýjar tegundir af kartöflum sem hafa þol eða ónæmi gagnvart sjúkdómnum. Ég rækta hvert yrki í nokkur sumur og met árangurinn – uppskeru, útlit og ekki síst BRAGÐ, auk eldunareiginleika sem geta verið mjög mismunandi. Kartafla sem er óheppileg í steikingu getur nefnilega verið frábær í súpu,“ útskýrir Gunnar.
Þessi nýju yrki koma frá Suður-Evrópu þar sem loftslag er hlýrra. Kartöflurnar vaxa hægar á Íslandi, verða minni og uppskeran rýrari, en margar þeirra hafa spennandi kosti. „Í sumar voru tíu yrki í ræktun hjá mér, þar á meðal eitt sem ég kalla Dívu og er stórkostlega gott til að búa til stökkar kartöfluflögur,“ segir Gunnar en bætir við að Dívan sé bragðlítil og frekar óspennandi soðin. „Síðan eru aðrar kartöflur, sem ég kalla Eldrauðar og eru frábærar steiktar, til dæmis í franskar, en líka mjög góðar soðnar.“
Hvers vegna lífræn ræktun?
Gunnar útskýrir að lífræn vottun tryggir að matvælin innihaldi ekki skordýra- eða illgresiseitur og betri aðbúnað fyrir búfé. „Fyrir mig sem neytanda snýst þetta einfaldlega um að vita hvað ég er að borða og ég veit ekki um neina aðra vottun en þá lífrænu sem tryggir það með skýrum og gegnsæjum kröfum. Mér þykir það líka falleg framtíðarsýn að allir hafi aðgang að hreinum og hollum mat sem er framleiddur í sátt við umhverfið og að það sé eftirsóknarvert að vera bóndi.“
Lífrænar kartöflur:
- Eru ríkar af C-vítamíni og steinefnum
- Geyma flest vítamínin í hýðinu.
- Ekki skræla – hýðið er æðislegt!
- Eru ræktaðar án eiturefna og tilbúins áburðar
- Geymast best í köldu og dimmu umhverfi
- Og laukur eru ekki góðir vinir. Ekki geyma saman
Sjáumst á Heilsudögum í Nettó dagana 15.- 25. janúar, yfir 1200 heilsuvörur á allt að 25% afslætti.




