Laugardaginn 7. nóvember klukkan 12:00 opnar ný og glæsileg Nettó verslun á Aðaltorgi í Reykjanesbæ. Verslunin er 1.495 fermetrar verður opin allan sólarhringinn

Í nýju versluninni opnar jafnframt fyrsta sérstaka snyrtivörudeild Nettó. Hún er um 130 fermetrar og hönnuð sem sjálfstæð verslun innan Nettó. Þar kynnum við fjölda nýrra vörumerkja sem sum hafa ekki verið til sölu á Íslandi. Allt frá vinsælli förðun og kóreskri húðumhirðu til hárvara sem fagaðilar nota, ilmefna og snyrtitækja.

Sérstök áhersla verður lögð á K-Beauty og alþjóðleg snyrtivörumerki á borð við TITTIR, Anua, Medicube, Biodance, Beauty of Joseon, b.tan, Azure Tan, Happy Crazy Mine, aura/me og L’Oréal Professionnel. Kíktu á dekurbarinn þar sem þú getur tínt saman allt það besta fyrir notalegt dekurkvöld. Andlitsmaskar, spennandi nýjungar og litlar gersemar sem gera gott kvöld enn betra.

Fyrstu 100 sem versla í snyrtivörudeildinni fá veglegan gjafapoka!

‍Gjafapokinn inniheldur meðal annars glaðninga frá Essence, by Veira, Frank Body, Erborian, GOSH, Rimmel, CeraVe, Garnier og Revolution.

Við munum fagna með látum og bjóðum þér í sannkallaða opnunarveislu á slaginu 12:00 á laugardag! Það verður nóg um að vera fyrir alla fjölskylduna.

  • Glæsileg opnunartilboð alla helgina
  • Gjafapokar fyrir fyrstu 100 viðskiptavinina sem versla í nýrri snyrtivörudeild Nettó
  • Lukkuhjól og skemmtilegir vinningar
  • Smakk og girnilegar vörukynningar
  • Candyfloss og blöðrur fyrir krakkana

Sjáumst á Aðaltorgi laugardaginn 7. nóvember kl. 12:00!