Ný og endurbætt verslun Nettó á Granda opnar um helgina og verður sérstök opnunarhátíð haldin af þessu tilefni. Fjölbreytt dagskrá verður í boði á laugardaginn 19. september.

Verslunin hefur gengið í gegnum umfangsmiklar breytingar þar sem áhersla hefur verið lögð á betra skipulag, aukið aðgengi og enn þægilegri verslunarupplifun. Meðal annars hefur verið ráðist í breytingar á uppröðun og flæði verslunarinna, heilsudeildin verið endurskipulögð og áhersla lögð á að gera það einfaldara að finna vörurnar sem leitað er að. Verslunin hefur einnig fengið nýtt útlit og uppfærða ásýnd í takt við nýtt vörumerki Nettó.

Uppfærð ásýnd Nettó er hluti af umfangsmiklu verkefni fyrirtækisins við að þróa verslanir sínar og bæta þjónustu við viðskiptavini um allt land. Breytingarnar munu birtast smám saman í Nettó verslunum á næstu mánuðum.

„Það er mjög ánægjulegt að sjá breytingarnar á Granda verða að veruleika. Markmiðið er að gera viðskiptavinum auðveldara að velja það sem hentar þeim, hvort sem það snýr að heilsu, ánægju eða skynsamlegum innkaupum. Við erum nú að færa þessar áherslur enn betur inn í verslanirnar okkar,“ segir Katrín Aagestad Gunnarsdóttir, markaðsstjóri Nettó.

Líkt og í öðrum Nettó verslunum sem hafa fengið yfirhalningu er lögð áhersla á ferskt og aðlaðandi yfirbragð og að vöruflokkarnir séu skýrir og aðgengilegir.

„Það er líka gaman að sjá hvernig nýja útlitið breytir upplifuninni af búðinni um leið og gengið er inn,“ segir Katrín.

Áherslan nær einnig til stafrænnar upplifunar. Í vor breyttist Samkaupa appið í Nettó appið og leggur það grunn að fjölmörgum nýjum lausnum sem kynntar verða á næstu misserum. Markmiðið er að tengja enn betur saman verslunina og stafræna þjónustu og gera viðskiptavinum auðveldara að nýta sér tilboð og þjónustu Nettó.

Fjölbreytt dagskrá og tilboð um helgina

Til að fagna breytingunum verður boðið upp á skemmtilega dagskrá í Nettó á Granda laugardaginn 19. september.

Valdar vörur verða á tilboði alla helgina. Á laugardeginum milli klukkan 13:00 og 16:00 verður efnt til veislu þar sem boðið verður upp á grillsmakk frá Stjörnugrís, lukkuhjól verður á staðnum og bragðgóðir vinningar í boði. Birgjar verða einnig á staðnum milli 13:00 og 15:00 með kynningar og sýnishorn af völdum vörum.