Það er komin ný búð í búðina okkar á Höfn í Hornafirði. Föstudaginn 20. nóvember opnaði PínuPrís inni í Nettó. Þar fást 500 vörur í sérmerktum Prís-hillum, á sama verði og í lágvöruverðsversluninni Prís.
PínuPrís er svokölluð búð í búð. Það er nýjung í íslenskri dagvöruverslun, en vel þekkt erlendis undir heitinu „shop-in-shop“. Þegar tvö verslunarform deila einu þaki getum við betur mætt óskum og þörfum viðskiptavina á hverjum stað, enda eru þær ólíkar eftir landshlutum.
„Það þarf nýsköpun í verslun eins og í öðrum geirum. Verslun á Íslandi hefur hingað til tekið hægum breytingum og við viljum þora að prófa nýjar leiðir,“ segir Sigríður Hrefna Hrafnkelsdóttir, framkvæmdastjóri Samkaupa. „Búð í búð gefur okkur tækifæri til að vera sveigjanlegri í rekstrinum og bregðast hraðar við því sem viðskiptavinir vilja á hverjum stað. Við viljum færa fólki um allt land meiri fjölbreytni í verslun og lægra verð. Höfn er fyrsta skrefið og við erum spennt að sjá hvert þetta leiðir okkur.“
Vörur sem fólk kaupir í hverri viku
Vörurnar 500 eru valdar úr öllu vöruúrvalinu, þar á meðal mest seldu vörurnar úr Prís. Lægsta verðið gildir alltaf: ef vara fer á tilboð í Nettó og verðið fer undir Prísverð, lækkar verðið á Höfn til samræmis.
Viðbrögð viðskiptavina ráða ferðinni
PínuPrís á Höfn er tilraunaverkefni og markmiðið er að sjá hvernig viðskiptavinir taka því. Við metum niðurstöðurnar jafnóðum og þróum fyrirkomulagið áfram eftir því sem reynslan kennir. Í framhaldinu verður ákveðið hvort verkefnið verði tekið lengra, til dæmis í fleiri verslunum Nettó.
Verið velkomin í Nettó á Höfn.











