Sigurjón Ernir Sturluson, einn af eigendum UltraForm og yfirþjálfari, miðlar reynslu sinni af styrktar- og úthaldsþjálfun.

Þú tekur þátt í fjölbreyttum og krefjandi keppnum. Hvernig nærir þú þig?

Til að hámarka líkamsstarfsemi og orkustig og hafa jafna og góða orku yfir daginn borða ég talsvert af innmat, nauta-, lamba- og þorsklifur, hjörtu og hrogn. Auk þess borða ég egg, beint frá býli, nauta- og lambakjöt og elgskjöt, sem ég kaupi frá Litháen, kjúkling og kalkún og talsvert af fiski.

Á matseðlinum eru einnig lífrænt hunang, lífræn grísk jógúrt og mjólk frá BioBúi, Kefir, ostur, súrkál, kókosflögur, avókadó, grænmeti og ávextir. Ég fasta yfirleitt hluta úr degi. Fyrri máltíðin er milli 12.30 og 14.30 og seinni milli 18.30 og 19.00. Hlutfall næringarefna er um 60–65% fita, 25% prótein og 10–15% kolvetni.

Á hverju byggir árangur þinn í keppnum?

Þjálfun, hugarfar, líkamlegt þol og aðlögun að aðstæðum, útfærsla í keppni – rétt jafnvægi milli ákefðar, næringar og salthlutfalls – og góð efnaskipti skipta miklu máli. Líkaminn þarf að vera vel undirbúinn, úthvíldur, vel nærður og vel þjálfaður með skipulögðum og góðum æfingum. Varðandi
næringu þarf sérstaklega að huga að vítamínum og steinefnum. Hugarfarið hefur mikið að segja, að hafa trú á sjálfum sér og vera tilbúinn til að gera sitt besta í öllum þeim aðstæðum sem geta komið upp.

Hvaða einföldu ráð getur þú gefið þeim sem vilja heilbrigðari lífsstíl?

Hvar er best að byrja? Oft nær fólk ekki árangri hvað varðar mataræði því það borðar ekki nógu saðsaman mat með nægilegri næringarþéttni. Pakkamatur og tilbúin ofurunnin matvæli eru næringarsnauð, veita aðeins orku í skamman tíma og fólk verður fljótt svangt aftur. Maturinn, sem ég nefndi, er saðsamur, heldur blóðsykri í jafnvægi og inniheldur lífsnauðsynleg næringarefni, prótein og fitu. Um leið og þú nærir þig rétt verður þú saddur lengur, færð jafnari orku, skýrari hugsun og betri svefn. Þá verða önnur verkefni miklu léttari og þér líður betur, andlega og líkamlega.

Sjáumst á Heilsudögum í Nettó dagana 15.- 25. janúar, yfir 1200 heilsuvörur á allt að 25% afslætti.